VM267 - Silhouette - 50x70 mockup

Silhouette

11.990 kr.
Fullt verð 11.990 kr.

Silhouette fangar hreyfingu augnabliksins með einfaldri og fágaðri framsetningu. Sterkar andstæður og skýrar línur mynda áhugaverða heild sem nýtur sín vel á vegg.

Verkið tilheyrir pari og passar sérstaklega vel með Atelier fyrir þá sem vilja skapa stærri og samhangandi myndavegg.

Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.

Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.

Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.


Stærð 50x70
Frí heimsending um allt land
2+ verk á 20% afslætti

Þegar þú kaupir tvö verk eða fleiri færðu 20% afslátt af öllum verkunum, óháð stærð. Afslátturinn reiknast sjálfkrafa í körfu og heimsending er alltaf frí.

Flutningur og afhending

Það er frí heimsending á öllum vörum hjá Marmor.

Öll verk eru prentuð eftir pöntun og eru send með Íslandspósti. Afhending tekur yfirleitt 2–3 virka daga en á álagstímum getur hún tekið allt að 6 virka daga. Pantanir innan höfuðborgarsvæðisins eru sendar heim að dyrum. Utan höfuðborgarsvæðisins eru sendingar afhentar á næsta pósthús eða afhendingarstað Íslandspósts. Öll prentverk eru skoðuð vandlega áður en þeim er pakkað í sterkan pappahólk sem verndar verkin við flutning.

Vöruskil

Hægt er að skila vörum innan 14 daga frá móttöku og fá endurgreitt. Til að skila vöru þarf hún að vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi.

Ef þú vilt skila vöru getur þú haft samband við okkur á marmor@marmor.is og við aðstoðum þig eins fljótt og auðið er.

Stærðir og innrömmun

Rammar fylgja ekki með prentverkum.

Flest verk eru fáanleg í stærðunum 30×40, 40×50 og 50×70 cm. Þessar stærðir eru staðlaðar rammastærðir og því auðvelt að finna ramma sem passar.

Fleiri verk fyrir þig