Gjafabréf frá Marmor er einföld leið til að gefa eitthvað persónulegt og leyfa viðtakandanum að velja sjálfur það verk sem passar best inn á heimilið.
Gjafabréfið er stafrænt og sent samstundis með tölvupósti eftir kaup. Í tölvupóstinum fylgir sérstakur kóði sem hægt er að nota við greiðslu í vefverslun Marmor. Hægt er að áframsenda tölvupóstinn beint á viðtakanda eða prenta gjafabréfið út og setja í umslag.
Gjafabréfið gildir fyrir allar vörur í vefverslun Marmor og er í gildi í eitt ár frá útgáfudegi.
Ef óskað er eftir annarri upphæð en þeim sem eru í boði er velkomið að hafa samband við okkur.

