Persónuvernd
Marmor (kt. 071292-2909) leggur áherslu á að fara með allar persónuupplýsingar af ábyrgð og trúnaði.
Þegar verslað er í vefverslun Marmor eða haft samband við okkur kunna upplýsingar á borð við nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang að verða skráðar. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntunum, afhenda vörur, svara fyrirspurnum og bæta þjónustu okkar.
Marmor selur ekki persónuupplýsingar til þriðja aðila. Í sumum tilfellum geta upplýsingar þó verið unnar af samstarfsaðilum sem tengjast greiðslum, afhendingu eða rekstri vefverslunarinnar, til dæmis Shopify, greiðslugáttum eða Íslandspósti.
Vefkökur
Vefverslun Marmor notar vefkökur til að tryggja eðlilega virkni síðunnar, bæta upplifun notenda og greina notkun vefsíðunnar. Vefkökur geta meðal annars verið notaðar til að:
- halda utan um körfu
- muna stillingar notenda
- greina umferð á síðunni
- bæta markaðssetningu og þjónustu
Þú getur stjórnað notkun vefkaka í stillingum vafrans þíns.
Fréttabréf og markaðsefni
Ef þú skráir þig á póstlista Marmor getur netfangið þitt verið notað til að senda upplýsingar um ný verk, útgáfur eða annað efni tengt Marmor. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að smella á afskráningahlekk í tölvupóstum frá okkur.
Réttindi þín
Þú hefur rétt til að fá aðgang að persónuupplýsingum sem við höfum um þig, óska eftir leiðréttingu eða eyðingu þeirra. Hafðu samband við okkur á marmor@marmor.is.