Listin að hanna myndavegg

Hlutföll, samsetning og jafnvægi

Að standa frammi fyrir stórum og tómum vegg á heimilinu getur verið bæði spennandi og svolítið yfirþyrmandi. Veggurinn býður upp á frábært tækifæri til að færa persónuleika, hlýju og kyrrð inn á heimilið þitt. Til þess að myndaveggurinn líti út fyrir að vera hannaður af yfirvegun frekar en tilviljun er gott að fylgja ákveðnum hönnunarreglum frá upphafi.

Með því að huga vel að hlutföllum, litasamsetningu og jafnvægi er auðvelt að skapa tímalaust og fallegt heildarútlit sem þú verður ánægð/ur með. Hér er farið yfir helstu skrefin í hönnunarferlinu.

1. Reiknaðu út stærðina á myndaveggnum

Áður en myndefni er valið þarf að átta sig á því hversu mikið pláss myndaveggurinn á að taka á sjálfum veggnum. Algeng mistök eru að gera myndavegginn of lítinn þannig að hann hverfi á stórum vegg, eða það stóran að rýmið virki yfirþyrmandi. Það er engin algild regla hér en ef þú vilt spila þetta öruggt getur þú reiknað með að myndirnar taki um það bil tvo þriðju af breiddinni í veggplássinu.

2. Veldu eina stóra mynd til að jarðtengja vegginn

Sérhver vandaður myndaveggur þarf akkeri, eina miðlæga mynd sem grípur augað fyrst og setur tóninn fyrir restina af samsetningunni. Þetta er yfirleitt stærsta verkið og það sem ber mesta sjónræna þyngd. Með því að velja þessa mynd fyrst og staðsetja hana nálægt miðjunni í augnhæð myndast punktur sem jarðtengir allan vegginn.

3. Skapaðu dýpt með ólíkum römmum og formum

Til þess að gefa veggnum meira líf og koma í veg fyrir að hann virki of stífur eða einhæfur er mikilvægt að blanda saman lóðréttum og láréttum römmum. Með því að brjóta upp formin fær augað meira til að skoða og dýptin í veggnum verður skemmtilegri. Lykillinn er hófsemi og gott er að takmarka valið við tvær til þrjár ólíkar týpur af römmum.

4. Hugsaðu út fyrir rammann

Fallegur spegill, stílhreint veggljós eða persónulegt skraut eins og lítil fígúra eða gróður á nettri hillu brýtur upp flötinn á einstakan hátt og færir þrívídd og persónuleika inn á vegginn. Myndaveggur þarf ekki eingöngu að samanstanda af hefðbundnum myndum í römmum — með því að hleypa öðrum hlutum að má lyfta hönnuninni á hærra og persónulegra plan.

5. Myndaðu súlur með römmunum

Ef markmiðið er að raða saman mörgum ólíkum stærðum, formum og hlutum án þess að útkoman virki tilviljanakennd er ein einföld hönnunarregla sem getur hjálpað — hugsa í súlum. Í stað þess að raða hlutunum algjörlega á mis skaltu búa til ósýnilegar og lóðréttar línur á veggnum. Innan hverrar súlu geta verkin og stærðirnar verið ólík, en með því að reyna að fara ekki alveg á mis við þessar línur fær augað ákveðna reglu og skipulag.

6. Gættu að millibilinu

Fjarlægðin á milli ramma þarf að vera jöfn og samræmd, yfirleitt á bilinu 5 til 10 sentímetrar. Ef rammarnir eru of nálægt hver öðrum virkar veggurinn þröngur. Ef þeir eru of langt í burtu missa þeir sjónræna tengingu og hætta að virka sem ein heild.

Heildstæðar lausnir fyrir heimilið

Að finna réttu samsetninguna, reikna út hlutföll og para saman ólíkar stærðir getur reynt á þolinmæðina. Hjá Marmor höfum við hannað samsetningar og myndaveggi þar sem búið er að velja aðalmyndina og samstilla hana með verkum sem tóna fullkomlega saman. Skoðaðu úrvalið okkar af samsetningum hér fyrir neðan og færðu þinn persónuleika inn á heimilið.

Myndaveggir