Le Taureau er innblásið af hinni þekktu myndröð Pablo Picasso þar sem hann þróaði mynd nautsins í átt að einfaldari og skýrari formum. Fáar línur og sterk myndbygging gefa verkinu karakter og færa rýminu jafnvægi og persónuleika.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

