VM51 - Larkspur - 50x70 mockup

Larkspur

11.990 kr.
Fullt verð 11.990 kr.

Larkspur er mynstur eftir William Morris (1834–1896), einn áhrifamesta hönnuð Arts & Crafts hreyfingarinnar. Endurtekin náttúruform og ríkuleg smáatriði skapa áhrifamikið verk sem ber með sér þá vandvirkni sem William Morris er þekktur fyrir. Morris hafði sterka tengingu við Ísland og þýddi meðal annars Íslendingasögur á ensku í samstarfi við Eirík Magnússon.

Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.

Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.

Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

Stærð 50x70
Magnafsláttur

Veldu fleiri en eitt verk og afsláttur reiknast sjálfkrafa í körfu.

10% afsláttur af tveimur verkum.
20% afsláttur af þremur eða fleiri verkum.

Flutningur og afhending

Það er frí heimsending á öllum vörum hjá Marmor.

Öll verk eru prentuð eftir pöntun og eru send með Íslandspósti. Afhending tekur yfirleitt 2–3 virka daga en á álagstímum getur hún tekið allt að 6 virka daga. Pantanir innan höfuðborgarsvæðisins eru sendar heim að dyrum. Utan höfuðborgarsvæðisins eru sendingar afhentar á næsta pósthús eða afhendingarstað Íslandspósts. Öll prentverk eru skoðuð vandlega áður en þeim er pakkað í sterkan pappahólk sem verndar verkin við flutning.

Vöruskil

Hægt er að skila vörum innan 14 daga frá móttöku og fá endurgreitt. Til að skila vöru þarf hún að vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi.

Ef þú vilt skila vöru getur þú haft samband við okkur á marmor@marmor.is og við aðstoðum þig eins fljótt og auðið er.

Stærðir og innrömmun

Rammar fylgja ekki með prentverkum.

Flest verk eru fáanleg í stærðunum 30×40, 40×50 og 50×70 cm. Þessar stærðir eru staðlaðar rammastærðir og því auðvelt að finna ramma sem passar.

Fleiri verk fyrir þig