Red Plums er falleg ávaxtamynd í djúprauðum tónum á ljósum bakgrunni. Verkið hefur ferskt og hlýlegt yfirbragð og myndi njóta sín sérstaklega vel í eldhúsi eða borðstofu.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.