Bouvard sækir innblástur í klassíska franska plakatahönnun þar sem sterk form og fágaðir litir fá að njóta sín. Varirnar og hlýir tónar skapa leikandi hughrif og færa verkinu karakter og litafegurð.
Verkið tilheyrir pari og passar sérstaklega vel með Le Grand Jeu fyrir þá sem vilja skapa stærri og samhangandi myndavegg.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

