Shades sækir innblástur í Bauhaus-hreyfinguna þar sem einföld form, litir og skýr myndbygging voru í fyrirrúmi. Samspil litatóna og hringforma myndar sterka heild sem nýtur sín vel á vegg.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

