The Joy of Life er eitt þekktasta verk Henri Matisse þar sem litir, form og mannlíf fléttast saman á einstakan hátt. Djörf litanotkun og einföld form gera verkið að áhrifamiklu verki sem vekur strax athygli og gefur veggnum orku.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

