Growth byggir á fíngerðum línum sem mynda form sem minna á náttúrulegan vöxt og mynstur úr náttúrunni. Samspil línanna gefur verkinu dýpt og færir rýminu ró og karakter.
Verkið tilheyrir pari og passar sérstaklega vel með Flow fyrir þá sem vilja skapa stærri og samhangandi myndavegg.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

