Bauhaus 1923 byggir á þekktu sýningarplakati Bauhaus-skólans frá árinu 1923. Sterkar andstæður og einföld form endurspegla þá hönnunarstefnu sem hafði mikil áhrif á þróun nútímahönnunar.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

