Rosa Alba Cimboefolia er hluti af útgáfunni Les Roses eftir belgíska listamanninn Pierre-Joseph Redouté (1759–1840). Redouté var kallaður „Raphael blómanna“ og er enn talinn meðal færustu blómamálara sögunnar. Fíngerð hvít blóm og mjúkir litir skapa fágað verk sem einkennist af ró og náttúrulegri fegurð.
Verkið hefur verið endurunnið af Marmor og fært í nútímalegri búning út frá upprunalegum, hágæða skönnuðum verkum.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.


