Larkspur er mynstur eftir William Morris (1834–1896), einn áhrifamesta hönnuð Arts & Crafts hreyfingarinnar. Endurtekin náttúruform og ríkuleg smáatriði skapa áhrifamikið verk sem ber með sér þá vandvirkni sem William Morris er þekktur fyrir. Morris hafði sterka tengingu við Ísland og þýddi meðal annars Íslendingasögur á ensku í samstarfi við Eirík Magnússon.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

