Flower Market, Copenhagen sækir innblástur í blómamarkaði Kaupmannahafnar þar sem einfaldleiki og náttúrulegir litir fara vel saman. Hvít blóm og mjúk græn litbrigði skapa létt og hlýlegt verk sem færir rýminu ferskleika og birtu.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

