Blue Jay er verk úr Birds of America eftir John James Audubon (1785–1851), einni þekktustu fuglafræðibók allra tíma. Sterkir bláir litir og kraftmikil uppbygging gefa verkinu skýran karakter.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.




