Birds of Paradise byggir á verkinu Trochilidae eftir Ernst Haeckel og sýnir fjölbreyttar tegundir kólibrífugla í verki sem einkennist af litagleði, hreyfingu og ríkulegum smáatriðum. Samspil fuglanna og gróðursins skapar áhrifamikið verk sem vekur strax athygli og gefur veggnum líf.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.



