A Variety of Fruits sýnir fjölbreytt úrval ávaxta í verki sem er ríkt af litum, smáatriðum og áhugaverðum formum. Heiti ávaxtanna eru skráð á frönsku neðst í verkinu en myndskreytingin byggir á efni úr franska alfræðiritinu Nouveau Larousse Illustré.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.


