Nude VI er innblásið af hinu þekkta verki Blue Nude VI eftir Henri Matisse og færir það í hlýrri og bjartari lit. Kraftmikið form verksins og einföld framsetning gefa því sterkan karakter og færa rýminu hlýju og líf.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

