Moon sækir innblástur í Bauhaus-hreyfinguna sem hafði mikil áhrif á þróun nútímahönnunar á 20. öld. Samspil forma, andstæður lita og grafísk framsetning skapa dýpt og færa rýminu nútímalegt yfirbragð.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

