Black Nude er innblásið af hinu þekkta verki Blue Nude II eftir Henri Matisse og færir það í nútímalegri og einfaldari mynd. Sterk form og djörf framsetning gera verkið að tímalausri viðbót við fjölbreytt heimili.
Prentað á þykkan 240g mattan pappír með hágæða bleksprautuprentun sem skilar skýrum smáatriðum og náttúrulegri litaframsetningu. Öll verk eru prentuð á Íslandi.
Fæst í stærðum sem passa fyrir staðlaðar rammastærðir. Rammi fylgir ekki með. Athugið að hlutföll myndarinnar geta breyst lítillega eftir valinni stærð.
Hvert verk er vandlega pakkað og sent í sterkum pappahólki til að tryggja öruggan flutning.

